David de Gea markvörður Fiorentina er í mögnuðu formi eftir að hann sneri aftur á völlinn eftir eitt ár í frí frá boltanum.
De Gea kom frítt til Fiorentina í sumar en hann hafði verið án félags í ár eftir að samningur hans við Manchester United rann út.
De Gea var í miklu stuði um helgina þegar Fiorentina vann sigur á Como í Seriu A um helgina.
Markvörðurinn knái átti sinn þátt í sigrinum en hann tók þrjár vörslur í sömu sókninni sem hafa vakið mikla athygli.
De Gea hefur verið besti markvörður Seriu A á þessu tímabili en Fiorentina er í fjórða sæti Seriu A.
David De Gea TRIPLE SAVE. 🤯
No words needed.#ComoFiorentina pic.twitter.com/xtbB3notu3
— ACF Fiorentina English (@ACFFiorentinaEN) November 25, 2024