Miðjumaðurinn Rodri fékk frábærar móttökur í gær er Manchester City mætti Tottenham á Englandi.
Um var að ræða leik í ensku úrvalsdeildinni sem meistararnir töpuðu með fjórum mörkum gegn engu.
Rodri var nýlega valinn besti leikmaður heims en hann er þessa stundina að glíma við meiðsli og er fjarverandi.
Stuðningsmenn City og starfsfólk félagsins tók vel á móti sínum manni í gær enda um afskaplega vinsælan leikmann að ræða.
Frábært myndband af þessu öllu saman má sjá hér fyrir neðan.
Man City’s celebration for Rodri’s Ballon d’Or win was incredible! 🤩 #MCITOT pic.twitter.com/82rXegPGCH
— The Sun Football ⚽ (@TheSunFootball) November 23, 2024