Liverpool getur náð átta stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í dag er liðið mætir Southampton á St. Mary’s.
Manchester City tapaði 4-0 gegn Tottenham í gær og er í öðru sæti deildarinnar með 23 stig, fimm stigum á eftir toppliðinu.
Southampton hefur lítið sýnt á þessu tímabili og er í botnsætinu eftir 11 leiki og hefur aðeins nælt í fjögur stig.
Hér má sjá byrjunarliðin í dag.
Southampton: McCarthy; Walker-Peters, Harwood-Bellis, Stephens, Fraser; Downes, Lallana, Fernandes; Dibling, Onuachu, Armstrong.
Liverpool: Kelleher; Bradley, Konate, Van Dijk, Robertson; Gravenberch, Szoboszlai, Jones; Salah, Nunez, Gakpo.