Pep Guardiola á í vandræðum með að spila gegn Tottenham en hans menn í Manchester City töpuðu 4-0 heima í kvöld.
City er svo sannarlega í lægð þessa dagana en liðið hefur tapað fimm leikjum í röð í öllum keppnum.
Á öllum sínum þjálfaraferli hefur Guardiola tapað níu sinnum gegn Tottenham sem er meira en gegn öllum öðrum liðum.
Þetta var einnig í fyrsta sinn sem Guardiola tapar á heimavelli með fjórum mörkum eða meira á sínum ferli.
Næsti leikur City er gegn Feyenoord í Meistaradeildinni og svo tekur við verkefni gegn Liverpool á Anfield.