Manchester City er samkvæmt fréttum dagsins að leiða kapphlaupið um Florian Wirtz miðjumann Bayer Leverkusen.
Enskir miðlar segja að Wirtz hafi mikinn áhuga á því að spila fyrir Pep Guardiola.
Florian er mjög skapandi miðjumaður en framtíð Guardiola var í lausu lofti, það er ekki lengur þar sem hann er að framlengja samning sinn við City.
Enskri miðlar segja að bæði Real Madrid og Liverpool hafi áhuga á Wirtz en hann vilji fara til City.
Búist er við að Wirtz færi sig um set næsta sumar og líklegast að hann verði blár í Manchester.