Besiktas í Tyrklandi vill fá Jorginho frá Arsenal og vonast félagið til að fá hann frítt næsta sumar.
Samningur Jorginho við Arsenal rennur út næsta sumar og er líklegt að hann fari þá frá Arsenal.
Jorginho er 32 ára gamall og hefur verið lengi á Englandi en hann lék áður með Chelsea.
Jorginho hefur hjá Arsenal iðulega verið í aukahlutverki og er búist við að hann yfirgefi Emirates næsta sumar.
Tyrkirnir eru hrifnri af því að fá leikmenn frítt og gæti Jorginho fengið vel borgað þar.