Enskir miðlar segja frá því í dag að Ruben Amorim styðji þá hugmynd félagsins að reyna að sækja Angel Gomes aftur næsta sumar.
Angel hefur verið hjá Lille undanfarin ár eftir að hann fór frítt frá United.
Þessi 24 ára gamli miðjumaður hefur fundið takt sinn í Frakklandi en samningur hans við Lille er á enda næsta sumar.
Angel ætlar ekki að endurnýja samning sinn við Lille og hafa Dan Asworth yfirmaður knattspyrnumála og Jason Wilcox tæknilegur ráðgjafi mikinn áhuga á að fá hann.
Amorim styður þessa hugmynd en Angel hefur komið sér inn í enska landsliðið á síðustu mánuðum.