Neymar hefur ákveðið að fjárfesta í góðri íbúð í Dubai en hann borgar 7,5 milljarð fyrir hana en hún er staðsett í blokk.
Um er að ræða Bugatti blokkina sem verið er að byggja.
Neymar býr í Sádí Arabíu í dag en hann er einn launahæsti leikmaður í heimi og virðist fjárfesta mikið þessa dagana.
Neymar getur keyrt bílinn sinn inn í lyftu sem tekur hann upp í íbúðina sína.
Neymar keypti sér lóð í Miami á dögunum og nú hefur hann rifið fram stóru seðlana fyrir íbúð í Dubai.