Arne Slot, stjóri Liverpool, viðurkennir að hann gæti þurft að takast á við ákveðið vandamál í vetur.
Slot ræddi þarna Mohamed Salah, Virgil van Dijk og Trent Alexander-Arnold sem eru að verða samningslausir og eru orðaðir við brottför.
Slot mun treysta á þessa þrjá lykilmenn svo lengi sem þeir standi sig á velli en ef frammistaðan ver versnandi þá gæti sú staða breyst.
,,Samningstaðan gæti orðið að vandamáli ef leikmennirnir spila verri leik en þeir eru að gera í dag,“ sagði Slot.
,,Það er líka ekki gefið að ef þeir spili ekki sinn besta leik að það hafi eitthvað með samningamálin að gera.“
,,Eins og staðan er þá eru allir leikmennirnir á góðum stað, þeir eru að spila mjög, mjög, mjög vel.„