Christian Falk blaðamaður Bild í Þýskalandi segir að Leroy Sane kantmaður Bayern sé efstur á óskalista Arsenal.
Sane verður samningslaus næsta sumar og getur því komið frítt.
Sane er 28 ára gamall og þekkir vel til í enska boltanum eftir ár sín þar hjá Manchester City.
Sane er snöggur og öflugur kantmaður sem Bayern gæti leyft að fara án þess að reyna að halda honum.
Fleiri lið fylgjast með Sane en Arteta er sagður hafa mikinn áhuga.