Arne Slot stjóri Liverpool vildi ekki búa í húsi sem félagið bauð honum, það er í Liverpool en Jurgen Klopp bjó áður þar.
Liverpool á húsið en það er nú komið á sölu eftir að Slot vildi ekki búa þar.
Ensk blöð segja svo frá því í dag að Slot hafi valið það að búa frekar í Manchester frekar en Liverpool.
Slot hefur náð sér í hús í Hale Barns sem er vinsælt hverfi á meðal knattspyrnumanna, hverfið er rétt fyrir utan Manchester.
Margir leikmenn Liverpool og Everton kjósa að búa þar en þar búa einnig leikmenn Manchester United, City og fleiri liða.