Sam Kerr sóknarmaður Chelsea og Kristie Mewis miðjumaður West Ham eiga von á sínu fyrsta barni saman, báðar leika í ensku úrvalsdeildinni.
Sam Kerr er ein besta knattspyrnukona í heimi en hún og Mewis hafa verið saman frá árinu 2021.
„Mewis-Kerr kemur árið 2025,“ sagði í færslu þeirra á Instagram.
Mewis er sú sem gengur með barnið en þær trúlofuðu sig á síðasta ári og virðist allt vera í blóma lífsins.
Mewis hefur spilað einn leik með West Ham á þessu tímabili en nú er ljóst að hún fer í frí frá leiknum.
Kerr er frá vegna meiðsla og hefur verið frá því í janúar þegar hún sleit krossband.