Taylor Harwood-Bellis miðvörður Southampton skoraði gott mark fyrir enska landsliðið í sínum fyrsta landsleik gegn Írum í gær.
Verðandi tengdafaðir hans Roy Keane var gestur ITV sem var með umfjöllun um leikinn.
Harwood-Bellis er trúlofaður Leah Keane sem er dóttir Roy Keane, fyrrum fyrirliða Manchester United.
Leah og Harwood-Bellis hafa verið saman í nokkur ár en faðir Leah var þekktur fyrir að vera harður í horn að taka á vellinum, ekki er ólíklegt að hann eigi einhver góð ráð fyrir varnarmanninn unga.
„Þetta er ekkert klárt hjá þeim, hlutirnir geta verið fljótir að breytast á heimili mínu,“ sagði Keane um þá stöðu að þau séu trúlofuð en ekki gift.
„Þetta er gaman fyrir hann, það er gott fyrir hann að fá sinn fyrsta landsleik. Hann er frábær drengur og hans fjölskylda hefur gert vel í að ala hann upp.“