Róbert Orri Þorkelsson varnarmaður Kongsvinger vill sem fyrst reyna að gleyma sjálfsmarki sem hann skoraði um helgina.
Róbert Orri er sterklega orðaður við heimkomu á næstu vikum til Breiðabliks. Róbert er á láni frá CF Montreal í Kanada en samningur hans er að renna út þar.
Kongsvinger er að berjast um að komast upp í efstu deild í Noregi en sjálfsmark Róberts hafði ekki áhrif í gær.
Kongsvinger mætti Lyn í umspili um að komast í úrslitaleik um sæti í norsku úrvalsdeildinni.
Lyn komst yfir með sjálfsmarki Róberts en vann leikinn að lokum í framlengdum leik.
Sjálfsmark Róberts má sjá hér að neðan.
The own goal by Robert Thorkelsson that gave Lyn the lead! 🫣 https://t.co/2HYisQKaF1 pic.twitter.com/iCQwtLuoBv
— Football Norway (@NorwayFooty) November 17, 2024