Það verður stuð og stemming á Wembley á sunnudagskvöld þegar Írland heimsækir England og Heimir Hallgrímsson verður á hliðarlínunni.
Heimir vann góðan sigur á Finnum á heimavelli í gær, þetta var annar sigur hans í fimm leikjum.
England vann góðan útisigur á Grikkjum í gær og er búist við stemmingu á Englandi.
Pressa hefur verið á Heimi í starfi og það nánast frá fyrstu sekúndu, sigurinn í gær gefur honum andrými.
England er með tólf stig í riðlinum en Írland er með sex stig.
All tickets for our #NationsLeague game against Republic of Ireland at @wembleystadium have now sold out.
Thanks for your support and see you on Sunday! 👋 pic.twitter.com/5MFuRuG9yr
— England (@England) November 15, 2024