Því er haldið fram í Þungavigtinni að Damir Muminovic muni mala gull þar sem hann mun spila í úrvalsdeildinni í Singapúr.
Damir hefur rift samningi sínum við Breiðablik og er að fara til Singapúr.
Í Þungavigtinni í dag er því haldið fram að Damir muni moka inn peningum og þéna allt að 12 milljónum króna á mánuði.
Ljóst er að þetta er gríðarleg launahækkun fyrir Damir sem er 34 ára gamall varnarmaður.
Hann var frábær með Blikum í sumar en hann mun gera samning fram á næsta sumar og gæti þá komið aftur heim í Kópavoginn.