Fjölskylda George Baldock mun ekki fá svör um það hvernig hann lét lífið, krufning um það verður ekki lokið fyrr en á næsta ári.
Knattspyrnumaðurinn lést á heimili sínu í Grikklandi í byrjun október, fannst hann látinn á botni sundlaugar í garðinum.
Baldock var leikmaður Panathinaikos í Grikklandi en hafði aðeins verið hjá félaginu í nokkrar vikur. Sverrir Ingi Ingason og Hörður Björgvin Magnússon eru leikmenn Panathinaikos.
Baldock hafði lengi spilað með Sheffield United en hann lék einnig með ÍBV hér á landi á ferli sínum. Baldock var 31 árs þegar hann lést.
Baldock fannst í sundlauginni og flaska af vodka var þar hálfkláruð, krufning mun leiða hið sanna í ljós hvernig andlátið bar að.
Baldock átti unnusta og ungt barn þegar hann lést en útför hans fór fram í Bretlandi á dögunum.