Ruben Amorim er mættur til starfa hjá Manchester United en hann mætti á æfingasvæði félagsins í gær.
Þar tóku þeir Omar Berada, Dan Ashworth og Jason Wilcox á móti stjóranum. Þeir stýra félaginu utan vallar.
Amorim mætti til Manchester með fimm aðstoðarmenn sína en fyrsti leikur United undir hans stjórn er eftir tæpar tvær vikur.
Amorim kemur til United eftir góða dvöl hjá Sporting Lisbon í Portúgal.
Hann stýrir United á útivelli gegn Ipswich í fyrsta leiknum en í kjölfarið taka tveir heimaleikir við.