Damir Muminovic hefur rift samningi sínum við Breiðablik og mun spila í Asíu næstu mánuðina.
Gunnar Birgisson þjálfari hjá Breiðablik og íþróttafréttamaður á Rúv segir frá þessu.
Damir er á leið í Singapore Super League fram á mitt næsta ár, hann getur mögulega framlengt samning sinn.
Damir ákvað að rifta samningi sínum í Kópavogi nú nokkrum vikum eftir að liðið varð Íslandsmeistari.
Damir er 34 ára gamall en þetta verður hans fyrsta lið erlendis á ferlinum.
Serbinn geðugi kveður Smárann🇷🇸🟢
Damir Muminovic hefur rift samningi sínum við Breiðablik og mun spila í Asíu(Singapore Super League) fram á næsta ár. Gerir samning þar til í júní með möguleika á framlengingu. pic.twitter.com/AQ8YYMc6kr
— Gunnar Birgisson (@grjotze) November 12, 2024