Borja Mayoral fyrrum framherji Real Madrid þarf að finna sér nýtt heimili eftir svakalegan bruna á heimili hans í Madríd.
Mayoral er 27 ára gamall en hann er í dag leikmaður Getafe.
Marca segir að efsta hæðin á heimili Mayoral og fjölskyldu sé gjörsamlega ónýt, talsverðar skemmdir eru á hæðunum tveimur þar fyrir neðan.
„Eins og einhverjir hafa séð í fjölmiðlum þá var vandamál á heimili mínu í dag,“ skrifar Mayoral í færslu á Instagram.
Flavia Natalini unnusta Mayoral þakkar stuðninginn í færslu og birtir myndir af ástandinu á efstu hæð í húsinu þeirra.