Kylian Mbappe var ekki valinn í franska landsliðshópinn að þessu sinni, Didier Deschamps ákvað þetta.
Deschamps telur að Mbappe þurfi á hvíld að halda eftir mjög erfiða tíma hjá Real Madrid.
„Ég ræddi við hann og tók þessa ákvörðun, Mbappe vildi koma. Það er ekkert vandamál,“ sagði Deschamps.
Mbappe fór til Real Madrid í sumar en hann hefur ekki fundið taktinn á Spáni.
Var það ákvörðun Deschamps að Mbappe tæki sér smá frí sem vonandi hjálpi honum að finna taktinn á Spáni.