Pau Cubarsi leikmaður Barcelona fékk hræðilega áverka í andliti í Meistaradeild Evrópu í gær.
Cubarsi var að reyna að skalla boltann þegar hann fékk takkana í andlitið frá leikmanni Rauðu stjörnunnar.
Barcelona vann 5-2 sigur í Meistaradeildinni í gær en Cubarsi fór af velli.
Cubarsi hefur birt myndir af áverkum sínum, hann fékk tíu spor í andlitið eftir leikinn.
Margir voru hræddir um að Cubarsi væri meira meiddur en óvíst er hvort hann missi af leikjum vegna þess.