Mason Mount miðjumaður Manchester United hefur upplifað algjört helvíti á því rúma ári sem hann hefur verið hjá félaginu.
Mount hefur verið mikið meiddur og ekki náð neinum takti í leik sinn.
Mount er hins vegar byrjaður að æfa á fullu með liðinu en hann mun þó ekki spila næstu tvo leiki.
Miðjumaðurinn ætti hins vegar að vera leikfær þegar Ruben Amorim stýrir sínum fyrsta leik eftir tæpar þrjár vikur.
Mount var keyptur af Erik ten Hag til United en hollenski stjórinn náði aldrei að nota Mount af neinu ráði vegna meiðsla.