Pep Guardiola, stjóri Manchester City, viðurkennir að hans menn hafi átt skilið að tapa í gær gegn Bournemouth.
City var að tapa sínum fyrsta leik á tímabilinu í deildinni en Bournemouth spilaði vel í 2-1 heimasigri.
Tapið kom mörgum á óvart en Guardiola segir að heimaliðið hafi einfaldlega spilað betur en meistararnir.
,,Við gátum ekki ráðið við leikmenn Bournemouth og þeirra pressu,“ sagði Guardiola eftir leikinn.
,,Við gátum ekki haft betur í löngu boltunum og þegar það gerist þá hrekkur boltinn til Semenyo eða aðra leikmenn og við þurfum að leggjast aftar.“
,,Þeir spiluðu ofar á vellinum en við og við réðum einfaldlega ekki við það.“