Nýr þáttur af Íþróttavikunni er kominn út en þar mætir Hilmar Árni Halldórsson sem gestur. Hann lagði skóna á hilluna á dögunum eftir glæsilegan feril með Stjörnunni.
Í þættinum er til að mynda farið yfir feril Hilmars og næstu skref hjá honum í þjálfun, ásamt miklu fleira.
Þá er einnig sýnt frá heimsókn í Víkina þar sem öll stemningin á leik Víkings og Breiðabliks um síðustu helgi var tekin inn.
Helgi Fannar Sigurðsson og Hrafnkell Freyr Ágústsson hafa að vanda umsjón með þættinum, sem kemur út alla föstudaga á 433.is.
Horfðu á þáttinn í spilaranum eða hlustaðu á helstu hlaðvarpsveitum.