Forráðamenn Manchester City eru brjálaðir út í ensku úrvalsdeildina og saka forráðamenn deildarinnar um rógburð eftir úrskurð sem féll í gær. Fengu öll lið töluvpóst í gær.
Manchester City vann dómsmál sitt við ensku úrvalsdeildina vegna APT regluverks sem deildin hefur verið með. Málið er ótengt þeim 115 ákærum sem enska úrvalsdeildin lagði fram á City og er það mál í gangi núna.
APT reglurnar eru ólöglegar samkvæmt nýjum dómi sem óháður dómstóll kvað upp um. APT reglurnar eru um auglýsingar frá fyrirtækjum sem eru tengd eigendum liða í deildinni, voru tveir slíkar samningar sem City ætlaði að gera stopaðir af deildinni.
Eigendur City höfðu tengsl við fyrirtækin en hinn óháði dómstóll segir að þessar reglur ensku deildarinnar séu ólöglegar. Enska deildin var ekki sammála þessu og sendi yfirlýsingu sem forráðamenn City eru reiðir yfir.
Svo reiðir voru þeir að öll 19 liðin sem eru með City í ensku úrvalsdeildinni fengu tölvupóst í gær þar sem lesið var yfir forráðamönnum deildarinnar.
„Því miður hefur deildin ákveðið að blekkja fólk og setjaf ram hluti sem eru ekki réttir,“ segir í pósti sem Simon Cliff starfsmaður City sendi á félögin.
„Sem er svo verra er að deildin ætlar að setja sér nýjar APT reglur á næstu tíu dögum. Við létum deildina vita árið 2021 að þessar reglur væru ekki í lagi og það kom á daginn.“