„Ólýsanleg, besta tilfinning ever,“ sagði Ísak Snær Þorvaldsson hetja Breiðabliks eftir 0-3 sigur liðsins á Víkingi í kvöld. Breiðablik er Íslandsmeistari.
Ísak skoraði tvö fyrstu mörk Blika í leiknum og var besti maður vallarins. Aðeins 250 Blikar fengu miða á völlinn.
„Við gáfumst aldrei upp, þeir reyndu að passa upp á það að enginn Bliki myndi mæta. Bönnuðu bróður mínum að fá miða, það stoppar enginn Kópavoginn.“
„Það vita allir að þessir leikir snúast um hver vill þetta meira, enginn taktík heldur hver vill þetta meira.“
Viðtalið er í heild hér að neðan.