Bacary Sagna, fyrrum leikmaður Arsenal, er á því máli að það myndi henta félaginu að fá til sín Paul Pogba á næsta ári.
Pogba er í leit að nýju félagi en ljóst er að hann á ekki framtíð fyrir sér hjá Juventus og er frjáls ferða sinna sumarið 2025.
Pogba þekkir til Englands eftir dvöl hjá Manchester United og telur landi hans frá Frakklandi, Sagna, að Arsenal sé flottur kostur.
,,Enska úrvalsdeildin hentar Paul Pogba, ég myndi elska að sjá hann hjá Arsenal,“ sagði Sagna.
,,Það væri frábært – hann er með reynsluna og elskar að spila með yngri leikmönnum í kringum sig, það hentar honum best.“
,,Það hentaði honum vel á HM 2018 og hann hefur sjaldan verið betri. Arsenal er með ungt og ferskt lið.“