Chelsea vann Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í dag en þrír leikir fóru fram núna klukkan 14:00.
Cole Palmer sá um að tryggja Chelsea sigur en hann skoraði með fínu skoti snemma í seinni hálfleik.
Manchester United tapaði gegn West Ham 2-1 í London þar sem vítaspyrnumark tryggði því síðarnefnda sigurinn.
Jarrod Bowen steig á punktinn undir lok leiks og tókst að tryggja þrjú stig fyrir sína menn.
Crystal Palace kom þá mörgum á óvart og vann Tottenham 1-0 þar sem Jean-Philippe Mateta gerði eina markið.
Chelsea 2 – 1 Newcastle
1-0 Nicolas Jackson(’18)
1-1 Alexander Isak(’32)
2-1 Cole Palmer(’47)
West Ham 2 – 1 Man Utd
1-0 Crysencio Summerville(’74)
1-1 Casemiro(’81)
2-1 Jarrod Bowen(’91, víti)
Crystal Palace 1 – 0 Tottenham
1-0 Jean-Philippe Mateta(’31)