Útlitið er ekki gott fyrir eina af helstu ef ekki helstu stjörnu Arsenal fyrir leik gegn Liverpool á morgun.
Stórleikur helgarinnar fer þá fram á Emirates en um er að ræða tvö lið sem vilja berjast um titilinn á tímabilinu.
Bukayo Saka, vængmaður Arsenal, æfði ekki á föstudag og verður mögulega ekki klár fyrir viðureignina vegna meiðsla.
Fleiri leikmenn Arsenal voru ekki sjáanlegir á föstudag en nefna má Riccardo Calafiori og Jurrien Timber.
Saka hefur ekkert æft með Arsenal undanfarið en hann meiddist í síðasta landsleikjaverkefni með Englandi.