Þann 27 ágúst árið 2023 skrifaði Roberto Mancini undir fjögurra ára samning við knattspyrnusamband Sádí Arabíu um að stýra landsliðinu þeirra.
Mancini var svo rekinn í gær en hann fær borgað út samninginn sinn.
Mancini var með 21,5 milljónir punda í laun á ár og fær þessi laun borguð út nú þegar búið er að reka hann.
Mancini fær því 60,9 milljónir punda næstu tæpu þrjú árin án þess að þurfa að mæta til vinnu. 10 milljarðar íslenskra króna í kassann.
Mancini mun fá 10,5 milljón á dag út samningstímann í laun, ágætis kaup fyrir það að þurfa ekki að vinna.