Adam Ægir Pálsson leikmaður Perugia á Ítalíu var í sínu besta skapi á æfingasvæði liðsins í gær þegar Heimsmeistari kom í heimsókn.
Marco Materazzi var mættur á svæðið en hann er goðsögn hjá félaginu.
Materazzi var hjá félaginu í tvígang en hann kom tli liðsins í seinna skiptið árið 1999 eftir stutta dvöl hjá Everton á Englandi.
Materazzi er kannski frægastur fyrir það að vera skallaður af Zinedine Zidane í úrslitaleik HM árið 2006.
Materazzi tók í spaðann á Adam sem var í sínu besta skapi en ítalska félagið keypti kappann frá Val í sumar.
Grazie @@iomatrix23 💪⚪️🔴#forzaperugiasempre @seriecofficial pic.twitter.com/tUEAbQcNFN
— A.C. Perugia (@ACPerugiaCalcio) October 24, 2024