fbpx
Laugardagur 26.október 2024
433Sport

Shakira sökuð um rætnar lygasögur eftir ljótan skilnað – „Ég get ekki stjórnað því“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 23. október 2024 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gerard Pique fyrrum varnarmaður Barcelona segir að fyrrum eiginkona sína Shakira gangi fram með lygar um samband þeirra og endalok þess.

Shakira og Pique ákváðu að slíta sambandi sínu árið 2022 en Shakira hefur sakað varnarmanninn um framhjáhald.

Pique er með Clara Chia Marti í dag en hún er tólf árum yngri, Shakira hefur haldið því fram að samband þeirra hafi hafist þegar hjónaband þeirra var enn í gangi.

„Sannleikurinn og hvernig hlutirnir gerðust er ekki eins og því hefur verið haldið fram. Ég get ekki stjórnað því,“ sagði Pique.

Pique er 37 ára og Marti er 25 ára.

Pique kveðst mjög hamingjusamur í dag.

„Það besta er að ég er í dag bara í kringum fólk sem ég elska, fjölskyldan, vinir og fólkið sem þekkir mig. Þau vita hvernig ég er og það gefur mér mikinn innri frið.“

Shakira og Pique eiga tvö börn saman. „Ég er mjög hamingjusamur, mér líður vel. Ég á frábær börn og ótrúlega fjölskyldu. Vini frá því í grunnskóla og ég er ánægður með lífið mitt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Jón Daði í Wrexham
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum
Jón Daði í Wrexham
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Sakna Jóhanns í Langaskíri og segja – „Gæfi allt til þess að fá hann aftur“

Sakna Jóhanns í Langaskíri og segja – „Gæfi allt til þess að fá hann aftur“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United byrjaður að vinna í banka

Fyrrum leikmaður United byrjaður að vinna í banka