Ofurtölvan geðþekka hefur stokkað spilin sín eftir komandi helgi í enska boltanum þar sem margt áhguavert gerðist. Arsenal tapaði gegn Bournemouth en Manchester City harkaði út sigur gegn Wolves.
Topplið Liverpool vann svo góðan sigur á Chelsea. Ofurtölvan telur að Manchester City muni vinna deildina með einu stigi.
Liverpool endar í þriðja sætinu og Chelsea tekur það fjórða.
Manchester United endar í tíunda sæti ef Ofurtölvan hefur rétt fyrir sér. Leicester verða einu nýliðarnir sem falla ekki úr deildinni.
Svona les Ofurtölvan í spilin.