fbpx
Föstudagur 25.október 2024
433Sport

Liverpool þarf að borga 100 milljónir fyrir arftaka Salah

Victor Pálsson
Þriðjudaginn 22. október 2024 19:55

Jamie Bynoe-Gittens Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bild í Þýskalandi segir að Liverpool sé að skoða það alvarlega að kaupa vængmanninn Jamie Bynoe Gittens frá Dortmund.

Bynoe-Gittens hefur vakið gríðarlega athygli hjá Dortmund en hann er enskur og var á sínum tíma hjá Manchester City.

Liverpool er að horfa í kringum sig í leit að arftaka Mohamed Salah sem gæti mögulega farið á næsta ári.

Salah er orðinn 32 ára gamall og nálgast samningslok en hann er orðaður við Sádi Arabíu.

Bild segir að Liverpool þurfi að borga 100 milljónir punda fyrir Bynoe-Gittens til að fá hann í sínar raðir sem er engin smá upphæð.

Bynoe-Gittens er 20 ára gamall og hefur spilað 68 leiki fyrir Dortmund ásamt því að skora níu mörk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Jón Daði í Wrexham
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum
Jón Daði í Wrexham
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sakna Jóhanns í Langaskíri og segja – „Gæfi allt til þess að fá hann aftur“

Sakna Jóhanns í Langaskíri og segja – „Gæfi allt til þess að fá hann aftur“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fyrrum leikmaður United byrjaður að vinna í banka

Fyrrum leikmaður United byrjaður að vinna í banka