Albert Guðmundsson entist í aðeins níu mínútur í dag er Fiorentina heimsótti Lecce í Serie A.
Albert var í byrjunarliði Fiorentina en meiddist eftir örfáar mínútur og þurfti að yfirgefa völlinn.
Vonandi eru meiðslin ekki alvarleg en Albert hefur verið frábær í byrjun tímabils með Fiorentina.
Hans menn eru að gera góða hluti en staðan er 5-0 þessa stundina er 64 mínútur eru á klukkunni.
Lecce er manni færri en Antonio Gallo fékk að líta beint rautt spjald í fyrri hálfleik.