Það var líf og fjör hjá CBS í Bandaríkjunum í gær þegar verið var að fara yfir Meistaradeild Evrópu.
Umræðan fór fljótt í algjöra vitleysu þegar farið var að ræða leik Brest og Bayer Leverkusen sem fram fer í næustu viku.
„Þetta verður stór leikur,“ sagði Thierry Henry um leikinn og við það hófst vandræðalegt augnablik.
Brest eða brjóst var ekki alveg að ná í gegn. „Ójafn leikur,“ sagði Micah Richards og notaði orðið „Lopsided“ sem er oft notað um brjóst sem ekki eru jafn stór.
Umræðan um þetta er hér að neðan.
Micah Richards says Brest are “a bit lopsided”😂😂😂
— Swearing Sports News (@SwearingSport) October 2, 2024