Harry Kane minnti svo sannarlega á sig í kvöld er Bayern Munchen mætti Stuttgart í Þýskalandi.
Kane og hans menn í Bayern voru lengi að skora fyrsta markið en staðan var markalaus í hálfleik.
Kane skoraði svo opnunarmarkið á 57. mínútu og bætti við sínu öðru aðeins þremur mínútum síðar.
Englendingurinn fullkomnaði svo þrennu sína á 80. mínútu áður en Kingsley Coman bætti við því fjórða.
Bayern er á toppi deildarinnar með 17 stig, jafn mörg stig og RB Leipzig.