Samkvæmt fréttum á Englandi má Antony fara frá Manchester United í janúar, til greina kemur að lána hann en félagið vill helst selja hann.
Enskir miðlar segja frá þessu en Antony sem kostaði félagið rúmar 80 milljónir punda fyrir tveimur árum hefur ekki fundið sig.
Antony hefur setið sem fastast á bekknum á þessu tímabili og virðist Erik ten Hag hafa gefist upp á honum.
Enskir miðlar segja að bæði Crystal Palace og Newcastle hafi áhuga á að fá Antony í janúar en honum hugnast betur að fara frá Englandi.
Fenerbache í Tyrklandi hefur einnig sýnt honum áhuga en það stefnir í að Antony fari frá United.