„Þetta er ótrúlega svekkjandi,“ sagði Andri Lucas Guðjohnsen eftir 2-4 tap gegn Tyrkjum á Laugardalsvelli í kvöld.
Íslenska liðið átti ágætis spretti í leiknum en Andri jafnaði leikinn 2-2 fyrir Ísland en það dugði ekki til.
„Við eigum ekki að tapa 4-2 í dag, það er bara svoleiðis. Mistök sem að við eigum ekki að vera að gera, þau eru dýrkeypt.“
„Ég gef víti, þegar Hákon missir hann. Svona hlutir gerast, þetta skiptir miklu máli í landsleikjum.“
„Við reynum að fækka þessum mistökum.“
Viðtalið er í heild hér að neðan.