Neymar er að ganga frá kaupum á eyju rétt fyrir utan Rio De Janeiro þar sem hann mun svo sannarlega geta notið lífsins.
Kaupsýslumaður frá Kanada á eyjuna og var að lækka verðmiðann um 500 milljónir.
Neymar mun greiða 1,3 milljarð fyrir eyjuna þar sem eru nokkur hús og allt það helsta sem til þarf.
Japao Private er glæsileg en þar er sundlaug og fleira til þess að slaka á og njóta lífsins.
Neymar er vel efnaður eftir feril sinn sem er enn í gangi en hann þénar rosalega í Sádí Arabíu í dag.
Eitt glæsilegt hús er á svæðinu og þrjár minni íbúðir sem horfa út á hafið.