Kristjana Arnarsdóttir hefur sagt upp sem starfsmaður á íþróttadeild á RÚV og hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra.
Kristjana er með B.A.-próf í mannfræði og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og MSc-próf í markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Kristjana hefur síðastliðin átta ár starfað hjá RÚV sem íþróttafréttamaður og þáttastjórnandi. Hún hefur til fjölda ára stýrt umfjöllun á RÚV frá mörgum stórmótum í íþróttum, unnið við innlenda dagskrárgerð í sjónvarpi og var spyrill í spurningaþættinum Gettu betur frá 2019-2023.
Kristjana hefur notið mikilla vinsælda á skjánum á RÚV og stýrt umfjöllun um flest stórmót síðustu ár, má þar nefna Evrópumótið í knattspyrnu á liðnu sumri.
Kristjana hefur störf í dag, 1. október. Hún mun starfa ásamt Teiti Erlingssyni, sem einnig er aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra.