Cristiano Ronaldo, leikmaður Al-Nassr, segir að flottustu mörkin á ferlinum eigi ekki roð í þá tilfinningu sem hann fær þegar hann stundar kynlíf með Georgina Rodriguez, unnustu sinni.
Ronaldo og Georgina, sem er 30 ára gömul, hafa verið saman frá árinu 2016, þau kynntust í skartgripabúð í Madríd er Ronaldo lék með Real Madrid. Georgina starfaði í þessari verslun.
„Falleg mörk eiga ekki roð í kynlíf mitt með Geo minni,“ sagði Ronaldo þegar hann var spurður um málið en hann hefur skorað ófá falleg mörk á ferlinum.
Hann segir að parið muni einn daginn gifta sig. „Við munum án nokkurs vafa gifta okkur einn daginn, það er draumur móður minnar. Hún er vinur minn og við ræðum öll mál, ég opna hjarta mitt fyrir henni og hún hjarta sitt fyrir mér.“
Rodriguez hefur einnig rætt um lífið með Ronaldo í svefnherberginu. ,,Að stunda kynlíf og dreyma saman er mikilvægt, ég sef alltaf í undirfötum og ég vil hafa þau kynþokkafull.“
Hún segir að kynþokafull undirföt séu lykill að því að hafa karlmann hamingjusaman. ,,Það er notalegt, kynþokkafullt og rómantískt. Það gerir líka kærastann þinn hamingjusaman.“