Það bíða margir spenntir eftir lokaleik helgarinnar á Englandi en leikið er á Old Trafford í Manchester.
United tekur á móti Tottenham og samkvæmt veðbönkum eru heimamenn sigurstranglegra liðið.
Tottenham er þó til alls líklegt en hefur þó byrjað tímabilið nokkuð erfiðlega og er með sjö stig eftir fimm leiki.
United er á nákvæmlega sama stað en er með verri markatölu og situr sæti neðar í því 11.
Hér má sjá byrjunarlið dagsins.
Manchester United: Onana, Dalot, De Ligt, Martinez, Mazraoui, Ugarte, Mainoo, Fernandes, Rashford, Garnacho, Zirkzee.
Tottenham: Vicario, Porro, Romero, Van de Ven, Udogie, Bentancur, Kulusevski, Maddison, Johnson, Solanke, Werner