Mikel Arteta, stjóri Arsenal, viðurkennir að hann ‘elski’ Pep Guardiola, stjóra Manchester City, en þeir hafa verið keppinautar undanfarin ár.
Arteta er fyrrum aðstoðarmaður Guardiola en þeir unnu saman hjá City þar sem Guardiola er enn við stjórnvölin.
Það er að myndast ákveðinn rígur á milli City og Arsenal í toppbaráttunni á Englandi en líklega er um tvö bestu lið landsins að ræða.
Arteta lætur vinnuna ekki koma í veg fyrir gott samband þeirra á milli og viðurkennir að Guardiola sé enn ofarlega á vinalistanum.
,,Ég elska hann, ég virði hann, ég dáist að honum og hans liði og öllu því sem hann gerir,“ sagði Arteta.
,,Þetta er íþrótt. Það er eitt að vera fagmaður í starfinu en okkar persónulega samband er annað umræðuefni.“