Arnór Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Blackburn þegar liðið 2-0 sigur á QPR í Championship deildinni nú rétt í þessu.
Arnór hefur ekki verið í hóp hjá Blackburn undanfarið.
Fyrst um sinn var Arnór að glíma við flensu en ekki hefur komið fram af hverju hann var fjarverandi í dag.
Arnór var einn besti leikmaður Blackburn á síðustu leiktíð en eftir meiðsli í landsleik í mars hefur hann ekki náð að festa sig í sessi.
Arnór hefur verið talsvert á bekknum í upphafi tímabils og er nú ekki í hóp.