Það er óvíst hvort markvörðurinn David Raya verði til taks fyrir Arsenal um helgina.
Þetta hefur Mikel Arteta, stjóri liðins, staðfest en Raya meiddist lítillega gegn Manchester City um helgina.
Neto gæti leikið í marki Arsenal gegn Leicester en hann er varamarkvörður liðsins eftir komu frá Bournemouth.
Raya hefur spilað glimrandi vel á tímabilinu og hefur verið einn allra besti leikmaður Arsenal hingað til.