Forráðamenn Real Madrid vilja ólmir frá Trent Alexander-Arnold bakvörð Liverpool næsta sumar þegar samningur hans er á enda.
Trent er samkvæmt fréttum í dag með það efst á blaði að skrifa undir nýjan samning.
Ekki hafa borist fréttir af því að Trent sé í formlegum viðræðum við Liverpool en hann vill vera áfram hjá uppeldisfélagi sínu.
Í enskum blöðum segir að Real Madrid sé með plan B ef Trent kemur ekki. Segir að Diogo Dalot hjá Manchester United sé næstur á blaði.
Dalot er 25 ára gamall bakvörður en Portúgalinn hefur fest sig í sessi hjá United síðustu ár sem lykilmaður.