Knattspyrnufélagið Fram kynnir með mikilli ánægju að við höfum gengið frá samningum við sóknarmanninn Róbert Hauksson.
Róbert, sem er fæddur árið 2001, er gríðarlega spennandi leikmaður sem hefur nú þegar spilað 127 meistaraflokksleiki og skorað 32 mörk.
Hann kemur til Fram frá Leikni Reykjavík og hefur samið við Fram til tveggja ára.
Róbert er annar leikmaðurinn sem Fram tekur frá Leikni í haust en í síðustu viku kom markvörðurinn Viktor Freyr Sigurðsson.