Bayern Munchen gæti fengið góðan afslátt á næsta ári en liðið hefur mikinn áhuga á að semja við Florian Wirtz.
Frá þessu greinir blaðamaðurinn Maximiliam Koch en Wirtz er á mála hjá Bayer Leverkusen og er 21 árs gamall.
Koch segir að Bayer sé með 125 milljóna punda verðmiða á Wirtz en hann verður samnningslaus 2027.
Leverkusen þarf því mögulega að selja strákinn næsta sumar á ódýrara verði eða um 83 milljónir punda.
Real Madrid er einnig að skoða Wirtz sem er einn efnilegasti leikmaður heims og hefur byrjað tímabilið stórkostlega.
Það kom einfaldlega ekki til greina fyrir Bayern eða Real að borga 125 milljónir fyrir strákinn í sumar.